Sjálfstæðisflokkurinn á Akranesi

05. janúar 2013

Bjarni Benediktsson á fundi með Sjálfstæðismönnum á Akranesi

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins kom í heimsókn á fund Sjálfstæðismanna á Akranesi núna í morgun. Fór hann yfir stjórnmálaástandið í dag og verkefnin framundan. Góð mæting var á fundinn og komu fjölmargar fyrirspurnir til Bjarna sem hann svaraði mjög vel. Málefni sem Bjarni fór yfir á fundinum voru m.a. verðtryggingin, ESB umsókn, Háskólasjúkrahús, gjaldeyrishöftin og síðan en ekki síst þá ræddi hann nauðsyn þess að bæta rekstarumhverfi fyrirtækja og auka kaupmátt landsmanna. Voru fundarmenn ánægðir með fundinn en á fundinum voru einnig mættir frambjóðendurnir Einar K. og Haraldrur. Sjá má myndir af fundinum á myndasíðunni.
06. desember 2012

Bæjarmálafundur 8.desember 2012

Bæjarmálafundur verður haldinn 8.desember kl. 10.30 að Garðarkaffi á Safnasvæðinu. Gestur fundarins verður Haraldur Benediktsson frambjóðandi. Einnig mæta á fundinn Einar Kr. Guðfinnsson. Hvetjum alla til að mæta.

29. ágúst 2010

Tvær bókanir Sjálfstæðismanna á síðasta bæjarstjórnarfundi

Á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir sumarleyfi lögðu fulltrúar Sjálfstæðismanna m.a. fram tvær bókanir, aðra sem sneri að auknum útgjöldum bæjarsjóðs og hina er sneri að vinnubrögðum í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, en eins og kunnugt er þá á Akraneskaupstaður einn fulltrúa í stjórn Orkuveitunnar.

Bókanirnar voru eftirfarandi:

29. ágúst 2010

Aðhaldstillaga Einars felld í bæjarstjórn

Þann 9.júlí s.l. var ákveðið á bæjarráðsfundi að styrkja nokkra aðila til greiðslu fasteignaskatta. Alls nema styrkirnir 2,9m.kr sem er 1,5m.kr umfram samþykkta fjárhagsáætlun (sbr. fundargerð fundarins).  Einar Brandsson fulltrúi Sjálfstæðismanna bókaði á móti samþykktinni.

Á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir sumarleyfi, sem haldinn var 24.ágúst lagði Einar fram eftirfarandi tillögu:

05. júní 2010

Að loknum kosningum

Að loknum kosningum hér á Akranesi fer margt í gegnum hugann.  Fyrst og síðast er ég alveg klár á því  að s.l. 4 ár séu  eitt mesta  framfaraskeið sem verið hefur hér á Akranesi um áratugaskeið, og  bæjarstjóri okkar hefur unnið kraftaverk á sumum sviðum eins og t.d. með tjaldsvæðið sem er orðið  eitt það  það flottasta á Íslandi, þökk sé honum.

05. júní 2010

Kosningaúrslitin

Niðurstöður kosninganna í tölum

Á kjörskrá voru 4.550

Kjörsókn 3.149

Auðir og ógildir voru 292 

Atkvæði skiptust þannig:

VG 465 atkvæði eða 16,3% og einn fulltrúi

Samf 993 atkvæði eða 34,8% og fjórir fulltrúar

Sjálfst 719 atkv eða 25,2% og tveir fulltrúar

Framsókn og óháðir 680 atkv eða 23,8% og tveir fulltrúar

28. maí 2010

Segjum sannleikann

Við síðustu kosningar vildi Samfylkingarfólk stækka Garðasel um tvær deildir, ekki byggja Akrasel sem er sex deilda leikskóli.  Sjálfstæðismenn voru einir með það loforð og staðið var við það loforð.  Bæjarbúar geta síðan spurt sig hvernig leikskólamálum væri háttað ef framtíðarsýn Samfylkingarfólks hefði fengið fram að ganga.