Sjálfstæðisflokkurinn á Akranesi

28. maí 2010 | 18:19:29

Segjum sannleikann

Við síðustu kosningar vildi Samfylkingarfólk stækka Garðasel um tvær deildir, ekki byggja Akrasel sem er sex deilda leikskóli.  Sjálfstæðismenn voru einir með það loforð og staðið var við það loforð.  Bæjarbúar geta síðan spurt sig hvernig leikskólamálum væri háttað ef framtíðarsýn Samfylkingarfólks hefði fengið fram að ganga.

Ársreikningar sveitarfélaga eru ekki barbabrellur. Þeir eru unnir eftir sömu nákvæmum reglum og þess vegna tilvaldir til þess að að bera saman.   Það kostar að byggja , það kostar að auka þjónustu það þarf ekki að útskýra fyrir fólki.   En þegar bæjarstjórnarfólk fer í ræðustól árlega og talar niður fjárhagsstöðu Akraneskaupstaður , þá er ekki til betri leið en að nota lykiltölur beint upp úr ársreikningum sveitarfélaga. Niðurstöður ársreikninga er ekki pólitík, þó fólk reyni að gera úr þeim pólitík og finni niðurstöðunum allt til foráttu.   Enn alvarlegra er að lausn allra flokkanna, nema sjálfstæðismanna ,við auknum skuldum var að auka skuldirnar enn frekar Kanna verði hjá Lánasjóðnum hvort hægt sé að fá kúlulán að upphæð 500-600 milljónir króna til 10 til 15 ára í því skyni að létta fjárhagsstöðuna. Slíkur lánasamningur þyrfti að vera með ákvæðum um endurskoðun ef vaxtakjör breyttust. ( tillaga flutt á bæjarstjórnarfundi  25. águst 2009).   Sem betur  höfðu þau ekki meirihluta í bæjarstjórn  til framfylgja þessari framtíðarsýn sinni eftir.

Ég treysti bæjarbúum vel til að bera saman ársreikninga sveitarfélaga og láta ekki pólitíska umræðu trufla sig í þeim efnum. Hægt er að skoða upplýsingarnar á www.xdakranes.is.  Í grein sem heitir „Góð viðbrögð bæjarbúa við opnuauglýsingu í Póstinum, smella á hér,birtist taflan í heild sinni.

Staðreyndin er nefnilega sú að erfiðleikar í þjóðfélaginu, úrræðaleysi ríkisstjórnar, erfiðleikar sveitarfélaga og erfiðleika einstaklinga þekkja allir bæjarbúar.  Það sem ég hef upplifað  í heimsóknum mínum um bæinn er þakklæti fyrir uppbygginguna en ekki síður  hvernig Akraneskaupstaður hefur náð að halda sjó í erfiðum aðstæðum.

Það er mikið verk framundan við uppbyggingarvinnu, þá skiptir miklu máli að til verka skipist fólk sem hefur þekkingu, reynslu og kjark til að sækja fram fyrir Akranes og stýri fjárhag bæjarins með ábyrgum hætti.

 

Eydís Aðalbjörnsdóttir bæjarfulltrúi .  Höf.  Skipar 4. Sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi.